Lögfræðiráðgjöf á fundi

Þjónusta

Lögfræðileg ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög

Lögmenn Granda veita fjölbreytta lögfræðiþjónustu með áherslu á skýr samskipti, fagleg vinnubrögð og raunhæfar lausnir. Við aðstoðum skjólstæðinga við að greina stöðuna, meta valkosti og taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref.

Hafa samband

Fyrsti fundur eða símtal er gjaldfrjálst og án skuldbindingar.

Ráðgjöf sem tekur mið af þínu máli

Lögfræðileg verkefni eru ólík og lausnin ræðst oft af aðstæðum hverju sinni. Við leggjum áherslu á að fara skýrt yfir málið, útskýra hvaða leiðir koma til greina og vinna markvisst að því að gæta hagsmuna skjólstæðingsins.

Hvort sem um er að ræða ráðgjöf, skjalagerð, samskipti við gagnaðila eða meðferð máls fyrir dómstólum leggjum við áherslu á vönduð vinnubrögð og góða upplýsingagjöf.

Almenn lögfræðiþjónusta

Ráðgjöf og aðstoð vegna fjölbreyttra lögfræðilegra álitaefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og félög.

  • Almenn lögfræðiþjónusta

Erfðaréttur

Aðstoð vegna erfðamála, gerðar erfðaskráa og skipta á dánarbúum.

  • Erfðaskrár
  • Dánarbússkipti

Fasteignir

Ráðgjöf vegna fasteignaviðskipta, húsaleigu, gallamála og réttinda eigenda eða leigjenda.

  • Kaup og sala fasteigna
  • Gallar og aðrar vanefndir
  • Húsaleiga
  • Fjöleignarhús og eignaskiptasamningar

Félagaréttur

Ráðgjöf til félaga, samtaka og sjálfseignarstofnana um skipulag, stjórnarhætti og ábyrgð.

  • Almenn félög og frjáls félagasamtök
  • Stjórnarhættir félaga, samtaka og sjálfseignarstofnana
  • Stjórn og framkvæmdastjórn, hlutverk, umboð og ábyrgð
  • Hluthafar og minnihlutavernd

Greiðsluerfiðleikar

Aðstoð vegna greiðsluerfiðleika, fjárhagslegrar endurskipulagningar og gjaldþrotaskipta.

  • Greiðslustöðvun
  • Nauðasamningar
  • Gjaldþrot

Hjúskapur og sambúð

Ráðgjöf og skjalagerð vegna fjárskipta, kaupmála, sambúðarsamninga og slita á hjúskap eða sambúð.

  • Kaupmálar
  • Hjúskaparslit og búskipti
  • Samningar sambúðarfólks
  • Sambúðarslit og fjárskipti

Hlutafélög, einkahlutafélög og fyrirtæki

Ráðgjöf vegna stofnunar fyrirtækja, kaup- og söluferla, samruna og yfirtöku.

  • Stofnun fyrirtækja
  • Kaup og sala fyrirtækja
  • Samruni og yfirtaka fyrirtækja

Sakamál

Aðstoð í sakamálum, bæði vegna verjendastarfa og réttargæslu brotaþola.

  • Verjendastörf
  • Réttargæsla brotaþola

Samningaréttur og samningagerð

Gerð, yfirferð og ráðgjöf vegna samninga, réttinda og skyldna samningsaðila.

  • Samningaréttur og samningagerð

Skaðabótaréttur og slysamál

Ráðgjöf og aðstoð vegna skaðabótakrafna, slysa og tjónsatvika.

  • Skaðabótaréttur og slysamál

Útlendingamál

Aðstoð vegna mála innflytjenda, flóttamanna, hælisleitenda og samskipta við opinbera aðila.

  • Flóttamenn
  • Innflytjendur
  • Hælisleitendur
  • Ríkisborgararéttur
  • Samskipti við opinberar stofnanir

Ertu óviss hvert næsta skref er?

Fyrsti fundur eða símtal er gjaldfrjálst og án skuldbindingar. Þú getur haft samband, sagt okkur stuttlega frá málinu og fengið fyrstu leiðsögn um möguleg næstu skref.

Hafa samband

marteinn@granda.is·626-9922